NEINEI

Dánarfregnir og jarðarfarir

13.02.2011 13:22:52 / Olli

Þorrablót 2011 (dirty version)

Intro

Siguróli:Jú heil og sæl ágæta samkoma. BS heilsar á þessu fallega kvöldi hér í Hrísey.

>

Unnar:Nú ég kem hér í umboði Veðurstofunnar til viðvörunnar og hefur hún gefið útstormviðvörun fyrir sviðið hér í kvöld.

>

Siguróli:Já í kvöld munum við ekki skafa af því frekar en fyrri daginn og viðkvæmarsálir og aðstandendur þeirra geta snúið sér til Baldurs í Sunnuhvoli sem ávaltheldur hlutleysi sínu. Nú Baldur sá sér ekki fært að mæta að þessu sinni a.m.k.Við munum að sjálfsögðu halda áfram að leggja Gísla Einars í einelti til aðhalda honum þægum.

>

Unnar:Á Þorrablótinu í fyrra komum við á framfæri nokkrum tilkynningum fyrir viniokkar. Nú þar sem viðtökur hafa verið ansi dræmar þá höfum við ákveðið aðendurflytja þær hér og nú og vonum að glæði viðskipta viðkomandi.

>

Siguróli:“Efþið fréttið af einhverjum listamannastyrkjum hikið þá ekki við aða hafasamband”. –Jóhann Árelíuz.

>

Unnar:“Tek að mér alla alhliða tölFuþjónustu”. –Bjarni í Track.

>

Siguróli:“Grjótharðurog til í hvað sem er”. –Steinn Péturs

>

Unnar:“Tek að mér allan andskotann”. –Haraldur Ingi

>

Geirsli Einarsson

>

Siguróli:Það er einn maður sem fellur ekki tár yfir umfjöllun okkar BS og það er Gísli Einarsson,eða Tæní eins og þeir kalla hann á Höfn og Lille eins og hann er kallaður áHvammi. Við erum þó nokkuð vissir á því að eftir kvöldið mun Gísli aldrei afturbiðja um að vera tekinn fyrir og ég meina það.

>

Unnar:Nú ehm Geisli hefur dregið margt úr dróma ár þau er hann hefur dvalið hér íHrísey og eru rétt rúm 20 ár síðan hann elti tólin á sér norður yfir heiðar. Okkurþótti vel við hæfi að setja fram ljóðstúf um beðmál Gísla og Hönnu sem viðkjósum að kalla, Skilyrðislaus ást.

>

>

>

>

>

>

>

Siguróli: />

Gísli Einars er upptekinn maður,
margt hann hefur á sinni könnu.

Á hverju kvöldi verður hann graður,
rífur sig úr og hamrar Hönnu.

>

Á morgnana þau uppgefin vakna,
ýta í Einar og hringja í Gest.

Yfir daginn þau hvors annars sakna,
og geta ekki beðið þar til sólin sest.

>

Unnar:
Undir settum reglum allt fer fram,

öryggið er sett á oddinn.

Smokkinn setur á félagann,
og tilbúinn er að fá sér á broddinn.

>

Stundum vilja nú vera læti,

þegar ofan á Gísla hún fær sérsæti.

Allt þau heyra, þau Birgir ogFríða.

Þ.e.a.s þegar Gísli erað.........smíða.

>

>

>

Hermann Jón

Siguróli: />

Næst er komið að jólasveini sem beitthefur okkur bræðrum miklum þrýstingi í gegnum tíðina. Þeir eru nefninlega fáirsem finnst jafn eftirsóknarvert að vera teknir fyrir af BS og Hermanni, eðavopnfirska kleinuhringnum eins og við köllum hann.

>

Unnar: />

Hvað er málið með Hermann Jón,
er þessi maður algjört flón?
Ég hitti hann í Miðbraut á labbi,
og hann sagð: „ég vill verða eins og tengdapabbi“.

>

Olli:
En þá ætlum við að lesa fyrir ykkur vísnastúfinn: „Hrisstu rassin hér kemurbassinn.“ Vísnastúfurinn fjallar um tengdaparið. Við beitningarmennirnir fengumað fara túra á Eydísinni og endurspeglar vísnastúfurinn upplifun okkar á nánusambandi tengdaparsins.

>

>

Unnar:
Hermann minn ertu alveg að sofna?

Já tengdapabbi, ég finn vöðvanadofna.

Sveinbjörn búinn‘að lesa og svæfasinn mann,

Já tengdapabbi sko ýmislegt kann.

>

Hemmi vaknar og rakar sitt skegg,

og Sveinbjörn með tilbúið beikon ogegg.

Þeir snæða svo saman við kertaljós,
já gaman er með tengdó til sjós.

>

Siguróli:
Svo koma þeir heim með met-afla,
og skrifa í sögu sína nýjan kafla.

Hemmi opnar bjór og rífur sig ákassann,

á meðan tengdapabbi plokkar bassann.

>

Ljúfir tónar og alcohol í æðum,
og lífið hefur náð, nýjum hæðum.
morgunmat var tengdó búinn að lofa,
og þá er bara best, að fara að sofa.

>

>

>

>

NarfiBjörgvinsson

/>

Unnar:
Trésmiðurinn, skallapopparinn og tenórinn Narfi Bjarnason er næstur. En viðvildum koma því að að hann tekur að sér alla alhliða trésmíðavinnu. Nú eh, þarsem við höfum aldrei tekið Lambhagabóndann fyrir þá ákváðum við að skella ívísu honum til heiðurs og hljóðar hún svona. />

>

Siguróli: />

Hmmmm.

Hallelúja.

>

Takk fyrir það.


Bjarni Þórarinsson

>

Unnar:
Næstur í röðinni er hnausþykkur frumkvöðull sem heitir Bjarni Þórarinsson, eðaÞykki eins og við köllum hann. Nú Bjarni hyggst leggja heiminn að fótum sér meðgrasalækningar að vopni. Seiðið sem Bjarni hyggst markaðssetja hjálpaði honumað ná þeim árangri sem raun ber vitni í Bekkpressukeppninni Hrísey Open en þarlagði hann að velli Stórbóndann og nautið Gísla Rúnar, Jóa P eða P-Daddy, Dúddudúllu og ættarstoltið Smára Þór. Smári Þór kærði úrslitin því hann vildi meinaað Bjarni hefði keppt undir áhrifum ólöglegra efna. Gísli Rúnar kærði úrslitineinnig þar sem hann sá Ella kokk lyfta undir stöngina hjá Smára Þór.

>

Siguróli:
Nú sömu þátttakendur öttu kappi í mottukeppni en þar bar Dúdda sigur úr býtum.Enginn kærði niðurstöðuna. Dúdda vann einnig firma mottu keppnina á Hvammi enþau úrslit komu engum á óvart þar sem Baldur er skegglaus og Gísli huglaus.Jóhann Pétur treysti sér ekki til að taka afstöðu.

>

Unnar:
Seiðkarl er nefndur Bjarni Thor,
á markaðnum hann er að verða stór,
í jólamessu um daginn hann fór,
því hann syngur bassa í kirkjukór.

>

Bjarni ræktar en neytir ei,

því hann er harður og hvönnin ergay.

Það er önnur vara sem Bjarni er aðneyta,
og útaf því er Sigga hann að deita.

Því Bjarni Thor og Sigga Magg,
fýla bæði íslenskt bagg.

>

>

Aðalsteinn Bergdal

Siguróli:
Við BS bræður erum miklir aðdáendur Alla Bergdal eða Kröstí eins og við köllumhann. Nú uhm ee þar sem við BS búum nú sunnan heiða er voða gott að fá veðurskeytifrá Aðalsteini á hverju kvöldi í gegnum samskiptavefinn Facebook. Þar lýsirhann veðri og vindum á afar myndrænan og rómantískan hátt.
Dæmi:  Fallegtvar um að litast í sólinni í henni paradís í gærdag og var engu líkara en aðeinhver hefði stráð glimmer yfir snjóinn. Og fallegt var gærkvöldið einnig meðsínu glitri, smá tunglrönd og stjörnubjart. Ok.

>

Unnar:
Þetter fallegt.

Eins og við öll vitum hefurAðalsteinn lagt stund á Tantra í mörg ár og framleitt sleipiefni og önnurunaðskrem úr gróðri eyjarinnar með góðum árangri. Menn á borð við Harald Inga,Þröst Jóhanns, Skralla trúð og Ómar Árna sem er sérlegur kynlífsráðgjafi BS,hafa allir prófað vöruna og segja hana hafa opnað nýjar víddir unaðsemda ogsmurt kynlíf sitt.

>

Siguróli:
Alli fór í bæinn,

og Alli fór í búð,

en hann er frekar laginn við það aðleika trúð.

En þá kom löggumann,
og handtók hann,
því Skralli er svo fokking leiðinlegur það nennti enginn að hlusta á hann.

>

Bréf frá Páli Abrahamsen />

>

Unnar:
Virðulega samkoma, þættinum barst bréf síðastliðið sumar sem við fluttum áHríseyjarhátíðinni en þar sem við glímdum við svolítið tough crowd þar þá ætlumvið að endurflytja bréfið. Nú uhm bréfið atarna er skrifað á móðurmáli ástkærranágranna okkar Færeyinga því það er gosögnin Páll Abrahamsen færeyingur sem hérskrifar og stílar bréfið á alla Hríseyinga og þó sérstaklega Birgi Sigurjónssonvin sinn.

>

Siguróli:
Unnar Númi mun lesa bréfið á færeysku, þar sem að hann er 1/8 Dani og ég Sigurólimun snara því jafn óðum yfir á móðurmálið, þar sem ég er 1 heill Íslendingur.Og hefst þá lestur.

>

>

Fær: Ì dag er ein stórur dagur fyri Føroyska landstyrið, tí ídag kemur bann í gildið, sum bannar mær at koma heim til oyggjarnar tey næstu20 árini.

>

Ísl: jú hann var semsagt að segjaað úr Færeyjum er allt gott að frétta, skyggni ágætt og fiskast hefur ágætlega,sérstaklega á norðurmiðunum.

>

Fær: Hetta bannið er komið tí eg havi tikið allar kvinnurnar íFøroyum til sín sjálvs í nógv ár og hetta haldi eg ikki er rættvíst, at einfamilja skal blíva til eina natión.

>

Ísl: heyrðu já hann var nú bara aðsegja að þessi blússa sem þú ert í hérna sé mjög hugguleg.

>

Fær: Eg havi verði og skøkjast runt og eg nokti ikki atsprutti ikki er gott og eg havi verði í song við fleiri kvinnum frá Føroyum,hvis ikki fleiri hundrað av teimun. Summi siga at eg havi verði í song við 17%av fólkinum, men tað er bara fólkasøga.

>

Ísl: jú ehm, hér segir hann að hannhugsi ávalt með hlýhug til baka, til áranna sinna hér á perlu Eyjafjarðar.

>

Fær: Einaferð bant eg eina kvinnu til køksborði hjá abba mínumog helt at tað var mega feitt.

>

Ísl: hann gleymir aldreikvöldsólinni og hvernig hún seig rólega í hafið við sjóndeildarhringinn um leiðog hún baðaði eyjuna geislum sínum.

>

Fær: Tað er næstan blivið til eitt kenni tegn hjá mær atleggja skerpikjøt á búkin hjá mínum vinkonum og eta tað av teimun við góðarimatarlist.

>

Ísl: jú hann segist hlakka til aðheimsækja eyjuna fljótlega en sem stendur sé hann býsna upptekinn.

>

Fær: Eg raki mær kúlurnar dagliga, tí eg haldi at tað erógvuliga viktugt at verða snøggur i neðra.

>

Ísl: Bestu kvejður til ykkar allra,kær kveðja, Páll Abrahamsen.

>


Birgir Sigurjónsson

Unnar:
Hvaðan kom hann? Hvert er hann að fara? Hvað er hann? Allt eru þetta spurningarsem við höfum öll spurt okkur að þegar kemur að næsta viðfangsefni, en það ereinmitt Jón Ásgeir okkar Hríseyinga, hann Birgir Sigujónsson.

>

Siguróli:
Græðir á daginn og grillar á kvöldin,
á nóttunni dregur fram partýtjöldin.
Vinnur út í eitt og á öllum vélum keyrt,
en um helgar prýðir Birgir forsíðu Séð og Heyrt.

>

Fríða og hennar vinkonur, fá aðspila snóker,
en Biggi býður strákunum, heim til sín í póker.
Þar spila digrir menn uppá stórar summur,
á boðstólnum er bjór og jafnvel nokkrar lummur.

>

Unnar:
En nú var komið að Gunnari Páli,
því að keppnir oft hann skipta máli,
Smára náði að leggja af velli,
og tengdapabbi fór heim í hvelli.

Birgir og Gunnar voru eftir einir,
morguninn kominn og orðnir alltof seinir.

Spennan var mikil en Birgir þagði,
í Gunnari Páli var farið að hlakka.
Að lokum vann Birgir hann stóð upp og sagði,

Það er voða lítið mál, að sigraþessa krakka.

>

*Löng vandræðaleg þögn*

>

Outro

Siguróli: Við erum búnir. />

>

Unnar: Bless. />


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.07.2010 13:43:02 / Olli

Atriði BS á Hríseyjarhátíð 2010

Beitningskurður

 

 



Intro
Unnar:
Komið þið sæl og blessuð, það er dúettinn BeitningSkurður sem heilsar ykkur hér á þessu fallega laugardagskvöldi. Nú ehhm, dúettinn fagnar um þessar mundir 5 ára afmæli og í tilefni þess munum við bjóða uppá léttleikandi molasúpu hér á sviðinu í kvöld.

 

Olli:
Rétt er það Unnar Númi. Þessir jakkar sem við klæðumst hér í kvöld, hafa fylgt okkur bróðurpartinn af þessum 5 árum. Nú þið sem eruð að velta því fyrir ykkur: “Hvar fær maður svona jakka?” Það er einfalt svar við þeirri spurningu. Þannig er mál með vexti að það var búið að bóka okkur félaga á stóra skemmtun og þar sem við erum nú ekki þekktir fyrir annað en að vera snyrtilegir til fara þá var kominn tími á einkennisklæðnað. Við sippuðum okkur náttúrlega þarna í DressMann og það fyrsta sem maður sér, hangandi hátt á veggi eru þessir glæsilegu jakkar, og þegar betur var að gáð að þeir voru á gjafaverði. Ekki rétt Unnar Númi?

 

Unnar:
Jú Siguróli, kórrétt. Þetta var eins og versla sér á nammibarnum, maður púngaði einum 500 krónum út fyrir þessu, svo það var eins gott að þeir voru flottir jakkarnir. Reyndar var bara einn jakki í búðinni sem þótti ljótari en rauða gullið og var það svona tannlækna grænn jakki. Við ákváðum þó ekki að ganga svo langt í það skiptið en þegar komið var uppá svið á þessu fyrsta giggi okkar bræðra, þá var okkur litið yfir salinn og viti menn, þarna var Þorgeir Jónsson í öllu sínu veldi, skælbrosandi í tannlækna jakkanum, afar sáttur við lífið.

 

 

Slátrið

Olli:
En jæja, þá skulum við fara að hefja ljóðalestur. Nú það er ekkert öðruvísi en það en að við bræður höfum unnið fyrir hinu ýmsu sérfræðinga, en þannig er nú mál með vexti að við erum vanir að taka svona snillinga fyrir. Það er eitt tímabil á þessari lífsgögnu sem að enn á eftir að gera skil en það er þegar við félagar þáðum laun frá stórsamsteypunni Íslensk sjávarþang. Það var þegar Jón Ásgeir okkar Hríseyinga, Vikingur Smárason, réði ríkjum á Sandshorninu.

 

Unnar:

Hjá þessu firma starfaði ungur og efnilegur maður sem eins og margir samstarfsmenn okkar átti þátt í að móta okkur. Þessi ungi og efnilegi maður er enginn annar en Ómar helbreiður Árnason sem að tók að sér kynfræðsluþátt uppeldis okkar og höfum við ekki beðið þess bætur allar götur síðan. Til að lýsa þessu betur pússluðum við saman dverghendu einnri með gnýstuðlum sem við kjósum kalla “Slátrið” og Unnar Númi ætlar að flytja ykkur hana.

 

Olli:

Sólríkan dag við kallið fengum,
þetta var okkar eina von.
Stoltir niður í Sjávarfang gengum,
því hver vill ekki vinna fyrir Smárason?

 

Eftir kaffi við þreyttumst pínu,
gamanið var þá farið að kárna.
En siglandi eftir lausfrystilínu,

kom hnausþykkt slátrið á Ómari Árna.

 


Olli:

Pétur Birgis

Pétur Birgisson veður í atvinnutilboðum þessa dagana. Þrátt fyrir mikinn niðurskurð hjá Ríkisútvarpinu hefur Pétri verið boðin staða sem þrífótur í kvöldfréttum Sjónvarpsins. Þegar við í BS náðum á Páli Magnússyni var hann staddur í laxveiði austur á landi og vildi hann lítið tjá sig um limaburð Péturs. Þessi ráðning varð okkur að yrkisefni og fannst okkur því tilvalið að smella í eina hringhendu með stífðum síðlínum sem við kjósum að kalla “The Rúv is on fire”.

 

Unnar:

Við ráðningu var hann talinn skrýtinn,
fyrir fréttalestur þótti of ljótur.

En þar sem hann er ekki með lítinn,

nýtist hann vel sem þrífótur.


Olli:

Óli Pálmi

Nú á dögum er allt til sölu hjá loðfílnum Ólafi Pálma og viljum við koma hér tilkynningu á framfæri, en Ólafur auglýsir eftir smiðnum sem að klæddi húsið hans sumarið 2007, en þess má geta að smiður þessi er auðþekkjanlegur á því að það eina sem hann virðist geta klætt eru hús, en sjálfur er hann yfirleitt léttklæddur. Við BS bræður munum vel eftir smiðnum og lýsum við honum á eftirfarandi hátt :

 

Hann er vígur að vexti, nokkuð lofthár, hrikalegur, ófríður, hornamikill, hringhyrntur, dálítið hornskekktur, höfuðstór og ennisbreiður. Svo er hann golsóttur og eitthvað léttrækur svona, jafnvaxinn og svona þrekmikill og með smá brúsk.

 

Unnar:

En eins og við öll vitum þá hefur Ólafur tekið sér ýmislegt fyrir hendur á skrautlegum ferli sínum og fer hann yfirleitt fremstur í flokki hvar sem hann kemur niður fæti. Eftir að hafa sigrað slátturmarkaðinn með BS innanborðs og velt hverri milljóninni af fætur annarri þá ákvað hann að snúa sér alfarið að dyravörslu og líkamsrækt og í dag er Ólafur orðinn vinsælasti, virtasti og breiðasti dyravörður landsins. En við í BS höfum áræðanlegar heimildir fyrir því að Ólafur ætli að hætta dyravörslu í haust og setjast á skólabekk í kjölfarið. Við munum flytja ykkur fréttir þessar í stúfhendu nokkurri sem við sömdum á dögunum sem við kjósum að kalla “Nýtt líf”.

 

Á rekstri var Ólafur orðinn þreyttur,
á öðrum sviðum náði yfirburðum.

Liggur yfir bókum löðursveittur,
í dyrasálfræði við Háskólann á Hurðum.

 

Smári Thor

Olli:

Það er einn stór aðili sem að við höfum aldrei þorað að taka almenninlega á. En nú munum við fjarlægja hanskana og koma okkur beint að kjarna málsins. Maðurinn sem um ræðir er enginn annar en ljúfmennið, kyntáknið, fjárfestirinn, Flateyingurinn og maðurinn með gaddavírsröddina sem er alveg eins og Borat. Hér er að sjálfsögðu átt við Smára Thorarensen. Í vændum er lengsta ljóð kvöldsins og í því koma fyrir hinu ýmsustu fjörkálfar sem á vegi okkar hafa orðið. Smári Thor er í aðalhlutverki en með aukahlutverk fara kartöflubóndinn og beitningarkóngurinn Geirsli Einarsson, verkalýðsforinginn og stórkaupmaðurinn Dúdda dúllan mín og síðast en ekki síst fagfjárfestirinn og skortstöðusnillingurinn Stefán Björnsson. En þess má geta að Stefán Björnsson er ein aðalástæða fyrir falli íslensku krónunnar, þar sem hann tók stöðu gegn henni á haustmánuðum 2008. Ljóð þetta er ort undir bragarhætti sem oft er kenndur við einfrumunginn Víði Björnsson og kjósum við að kalla ljóðið “Stein-grjót-anskoti-haltu-kjafti”.

 

Unnar:

Vaknar snemma ákaflega hress,

og smellir sér í sitt porno-bláa dress.

Í morgunmat fær sér beikon og egg,

og snyrtir sitt virðulega yfirvaraskegg.

Út úr hlaði reikspólar Smárinn,
Steina í glugganum þerrar tárin.
Komdu nú heill heim Smárinn minn,

í kvöld mun ég bíða með glaðninginn þinn.

Á leið niðrí ferju rekst hann á mann,

já maður er það sem ýmislegt kann.

Gísli Einars var að keðja Fordinn,
þegar aðvífandi kemur lordinn.

Í lotningu sinni krýpur á kné,
með hann grjótharðann eins og tré.
Enginn veit hvað Gísli hafði í hyggju,
Smári trylltist, og brunaði niður á bryggju.

Ferjuna keyrð’ann eins og druslan dró,
með rettuna í kjaftinum Pétur hló,
stuttu síðar úr leiðindum dó,
já Smári Thor var aleinn útá sjó.

Olli:

Um borð kom Dúdda með tuttugu poka,
því annars myndi Ingimar búðinni loka.

Enginn um borð lyfti upp litla fingri,
og Dúdda vildi óska þess að hún væri aðeins yngri.

Í 10 ferðum pokana bar, inn af öllu afli,
já þungar voru vörurnar, þetta var svaka stafli.

Smári floraði ferjuna og útúr höfninni keyrði,
Dúdda tuðaði alveg tryllt og Gísli í henni heyrði.

Smári kom og sagði þeim að vera ekki með væl,

Gísli brást þá illur við og svaraði um hæl.

Nú stefndi allt í óefni og fólk var byrjað að hrópa,

sem betur fer var maður um borð, sem oft er kallaður ÓPA.

Ólafur snéri þá niður um leið,
í símanum, var maður sem beið.
Eftir að hafa róað þá niður,
svaraði í símann, það er fastur liður.
Stefán Björnsson á línunni var,
og var með hugmynd um að opna bar.
Stebba vantaði fjársterkann mann,
og einhvern sem á rekstur kann.

Tilboði Stefáns Ólafur tók,
og eiginfjárstöðu sína jók.

Þreyttur var Smári eftir langan dag,

fór rakleiðis heim og losaði þvag.
Heima beið Steina og saknaði hans,
í stofunni stigu þau trylltan dans.

Smári var þreyttur og vildi fara sofa,
en fyrst var það glaðningur sem Steina var búin að lofa.

 

 

 

Unnar:

Heiðar Ingi Helgason

 

Næsti maður sem við félagar ætlum að taka fyrir er mikill sérfræðingur. Það hefur vakið athygli okkar hversu iðinn hann er við kolann á samskiptavefnum facebook og gefur hann seiðkarlinum Aloe Bergdal ekkert eftir í þeim efnum. Nú ehh, hann er ekki einungis virkur á facebook heldur er hann duglegur að sækja öldurhús N-Evrópu og hefur getið sér gott orð í þeim bransa. Skytta þykir hann góð og...ehhhh nóg um það. Við skulum nú bara athuga með það hvort við getum ekki flutt fyrir ykkur oddhentu hákveðuna sem við sömdum um þennan snilling. Hákveðan fjallar um Heiðar Inga og ber nafnið “Facebook Status”.

 

Unnar:
Vaknar snemma um morguninn,
grípur í símann og loggar sig inn.

Setur inn status og nokkur like,

býr til groupur og gerist fan af nike.

Skrifar hjá fólki og undir þeim kyndir,

kommentar á statusa og líka nokkrar myndir.

Ef lýsingar þessar þið eruð ekki að kaupa,
lítið bara á stelpurnar sem á eftir honum hlaupa.

 

 

 

 

 

Unnar:

Ásgeir Málari

 

Nú er komið að lofsönginum. Við félagar eigum okkur uppáhalds karaktera hér í Hrísey og nú er komið að því aið flytja ykkur lofsöng um einn þeirra. Þessi meistari, eða sjampión, er okkur öllum kunnugur en þarna fer heiðursmaður mikill sem við höfum alltaf litið upp til í orðsins fyllstu merkingu. Nú hann er berhöfðaður, lofthár, yfirleitt léttklæddur og léttlyndur, jú þarna fer enginn annar en Ásgeir Málarason, eða Ásgeir Málari eins og hann er nefndur í skjölum þess opinberra.

En síðast þegar við stigum á stokk þöndum við raddböngin og þótti viðstöddum það ekki ónýtt. Að þessu sinni ætlum við enn á ný að brydda uppá nýjung því nýsköpun hefur alltaf átt upp á pallborðið hjá okkur félögum. Núna ætlar semsagt Siguróli að rappa fyrir ykkur framhent fornyrðislag með flatrími og stöku fléttuböndum, gjörðu svo vel að fokking flytja fornyrðislagið, Siguróli.

 

Olli:

Oh, já, já, já-já-já-já-já

Að mála eru hans fucking ær og kýr,

Í bransanum er hann ekki nýr. ÓNEI.

Ofan í fötuna dýfir fínni rúllu,

Málar fyrir mig og líka fyrir Úllu.

Hann er óhræddur við, að sýna fucking kroppinn,

Já á sólríkum dögum he get‘s it poppin‘.

Á morgnana fær hann sér brauð og prótein-shake,

Á andlit hans fer sko ekkert fucking make.

Heilsar með brosi og nettu hand-shake,

Já svoleiðis kveðjur, þær eru ekkert fake.

Knattspyrnuiðkun setti svip á hans líf,

Hann spilaði aldrei með neina fucking hnéhlíf.

Í mörg ár var hann á mála hjá Narfa,

Lék á nokkra unga, og líka gamla skarfa.

Með vítaspyrnum gat hann andstæðingnum kálað,

Á punktinum var hann, öryggið uppmálað.

(Unnar ropar).

Olli: Hvað er að þér, það er dónalegt að ropa,

Unnar: Æj, hættu þessu væli, og fáðu þér annan sopa.

(Olli fær sér sopa og kartöflumús)

Unnar: hvað ertu að éta, er þetta kartöflustappa?

Olli: rétt, viltu? Þið hin megið klappa.

 

 

Fuglasöngur

 

Unnar:

Við gátum ekki komið fram hérna í kvöld án þess að taka á farfuglum. Við byrjum að sjálfsögðu á toppnum og flytjum ykkur fyrsta erindi ljóðabálks sem nú er í vinnslu og kallast “Fuglasöngur”. Nú þetta fyrsta erindi er um elstu og virtustu farfugla eyjarinnar, sem eru að sjálfsögðu hjónin á Stekkjarnefi, Jón og Auður.

 

Olli:

Jón, Auður og sjálfur drottinn,
voru á Stekkjarnefið hrakin.

Á morgnana skella þau sér í pottinn,

Auður er hulin en Jón er nakinn.

 

Bréf frá Páli Abrahamsen á færeysku:

 

Virðulega samkoma, þættinum hefur borist bréf. Reyndar berst okkur fjöldi bréfa, en aðeins fáein þykja flutningshæf. Reyndar er það svo að bréf þetta var stílað á alla Hríseyinga, nær og fjær og er það á færeysku. Unnar Númi mun lesa bréfið á færeysku, þar sem að hann er 1/8 Dani og Siguróli mun snara því jafn óðum yfir á móðurmálið, þar sem hann er 1 heill Íslendingur. Og hefst þá lestur.





Fær: Ì dag er ein stórur dagur fyri Føroyska landstyrið, tí í dag kemur bann í gildið, sum bannar mær at koma heim til oyggjarnar tey næstu 20 árini.

 

Ísl: jú hann var semsagt að segja að úr Færeyjum er allt gott að frétta, skyggni ágætt og fiskast hefur ágætlega, sérstaklega á norðurmiðunum.

 

Fær: Hetta bannið er komið tí eg havi tikið allar kvinnurnar í Føroyum til sín sjálvs í nógv ár og hetta haldi eg ikki er rættvíst, at ein familja skal blíva til eina natión.

Ísl: heyrðu já hann var nú bara að segja að þessi blússa sem þú ert í hérna sé mjög hugguleg.

 

Fær: Eg havi verði og skøkjast runt og eg nokti ikki at sprutti ikki er gott og eg havi verði í song við fleiri kvinnum frá Føroyum, hvis ikki fleiri hundrað av teimun. Summi siga at eg havi verði í song við 17% av fólkinum, men tað er bara fólkasøga.

Ísl: jú ehm, hér segir hann að hann hugsi ávalt með hlýhug til baka, til áranna sinna hér á perlu Eyjafjarðar.

 

Fær: Einaferð bant eg eina kvinnu til køksborði hjá abba mínum og helt at tað var mega feitt.

Ísl: hann gleymir aldrei kvöldsólinni og hvernig hún seig rólega í hafið við sjóndeildarhringinn um leið og hún baðaði eyjuna geislum sínum.

 

Fær: Tað er næstan blivið til eitt kenni tegn hjá mær at leggja skerpikjøt á búkin hjá mínum vinkonum og eta tað av teimun við góðari matarlist.

Ísl: jú hann segist hlakka til að heimsækja eyjuna fljótlega en sem stendur sé hann býsna upptekinn.

 

Fær: Eg raki mær kúlurnar dagliga, tí eg haldi at tað er ógvuliga viktugt at verða snøggur i neðra.

 

Ísl: Bestu kvejður til ykkar allra, kær kveðja, Páll Abrahamsen.

 

Unnar:

Þá er meginmáli lokið og er þetta þá ekki bara spurning um að fara og sippa í sig?

 

Olli:

Ekki spurning, við félagar þökkum fyrir okkur að þessu sinni.

 

Beitningskurður:

Bless kex!


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.02.2009 01:09:28 / Olli

uppistand á þorrablóti 2009

Uppistand BS á þorrablóti 14. Febrúar 2009

Intro

Olli:
Hæj. Við erum dúettinn BS og ætlum hér að vera með almenn leiðindi að venju, ekki rétt Unnar?

Unnar:
Jújú, laukrétt Siguróli. Undirbúningur hefur verið langur og strangur og vinnufriður lítill sem enginn á kaffihúsum höfuðstaðarins vegna innleiðingar kommúnismans. Nú eh, við ætlum ekki að vera pólitískir í ávarpi okkar heldur beinskeittir og hnitmiðaðir með snaggaralegum vísum og ætlar Siguróli að hefja leika með einni slíkri.

Olli: Takk Unnar.
Hvernig er stemningin hér í kvöld,
í salnum skynja ég ást og frið.
Hefjum hér nú hátíðarhöld,
og gefum engum mannapa grið.

Unnar:
Í kvöld verður tekið á ýmsum mönnum,
Huldu, Ólafi, Gíslum og Hönnum.
Biðjum við alla nú kyrra að sitja,
því gamanmálið við ætlum að flytja.

En fyrst þykir okkur við hæfi að lyfta glösum. Skál.

 

Heimir Áslaug

Olli:
BS trúðu ekki sínum eigin skilningarvitum þegar þær fregnir bárust suður yfir heiðar að bachelorinn eini væri genginn út. En datt okkur þó í hug eftirfarandi staka.




Unnar:

Heimir Áslaugs genginn út.

Farinn að setja á varirnar stút.
Við skulum nú ekkert við þetta fást,
því Heimir hefur fundið, hina sönnu ást.

 

Hermann Jón Erlingsson

Olli: Hermann Jón Erlingsson óskaði eftir því að vera tekinn fyrir.

Unnar: Það helvíti.

Olli: Við skulum róa okkur.  Þar sem BS eru þekktir fyrir að uppfylla allar óskir kúnnans þá verðum við við þeirri ósk hans.

Unnar: Hann hefur ef til vill haldið að við færum ljúfum höndum um hann en því fer fjarri og skulum við nú taka kleinuhringinn í bakaríið!

Olli:
Hermann og frú þau eru frjó,

karlinn sækir sæinn.

Þegar fisk skal draga úr sjó,

hann hringir í Díönu og fer í bæinn.


Unnar:

Til að geta ekki fleiri börn,

notar hann nú getnaðarvörn.

En Sólin skein og blóm í haga,

fyrr en varði komu börn í maga.


Olli:

Þegar þau ætla að bregða á leik,

Byrja þau á því að fara í sleik.

Hann kyssir hana á varirnar,

Og hefur svo samfarirnar.

 


Gestur Leó og Danmörk

Unnar: Við BS viljum minnast á einn höfðingja og útrásarvíking sem okkur er afar kær. Þar erum við vitaskuld að tala um fagurkerann og vitringinn Gest Legó Gíslason. Nú Siguróli ætlar að gera þessu máli frekari skil og flytja fyrir ykkur ljóðið “En stor öl tak”.

Olli:
Drekka og læra bæði í senn,
Geddi er orðinn heldur sljór.
Lyftir glösum sem innfæddir menn,
drygir hór...og drekkur bjór.

Drengurinn er góður,
bróðurinn er fróður,
faðirinn er óður,
og móðirin er ... BLESS.

Alli Bergdal

Unnar: Seyðkarlinn Alli Bergdal eða Alo Bergdal eins og henn er kallaður í heimi smyrslanna hefur vakið gríðarlega athygli fyrir smyrsl sín sem spáð er að muni tröllríða alheimsmarkaði innan fárra ára. Þótt ótrúlegt megi virðast hefur Alo ekki fengið nægilega á baukinn hjá okkur félögum miðað við stærð hans og umfang. Úr því verður nú bætt.

Olli:
Fimur er Skralli á hjólinu,
en betri þykir hann í bólinu.
Fer í beddann í fullum skrúða,
eins gott að daman fýli trúða.

Unnar:
Leiðsögumaður þykir hann góður,
eykur í leiðinni okkar hróður.
Kynþokkinn er af dýrustu gerð,
svo skipta þarf um sessur eftir hverja einustu ferð.


Gísli Einars

Olli: Við gátum ekki með nokkru móti skilað þessu verki frá okkur án þess að minnast á öryggisfulltrúann og drykkjumanninn Gísla Einars, eða “Lille” eins og við BS köllum hann.

Unnar:
Ef ekki er gert eins og Gísli segir,
greyið fer að gráta.
Jói P fyrir honum sig hneigir,
og gerir alla káta.

Mynningargrein um stórveldið ÓPA

Unnar: Síðastliðin ár höfum við félagar unnið nokkur handtök fyrir mann sem hefur gert okkur að því sem við erum í dag. Jú þetta er lærifaðirinn, skipuleggjandinn, stórbóndinn og hinn ósérhlýfni Ólafur Pálmi Agnarsson eða ÓPA alverktaki eins og hinir títtnefndu gárungar kalla hann. Nú höfum við opinberlega unnið okkar síðasta handtak fyrir ÓPA og er því við hæfi að Siguróli flytji fyrir hátíðargesti dróttkvæðið “Minningargrein um stórveldið ÓPA”, en það tónar betur (en hulda elvý) við slagorð BS sem er Dánarfregnir og Jarðarfarir. Gjörið þið svo vel.




Olli:

Tætti og tryllti og tækin hann þandi,

með fjarstýringu frá Árskógssandi.
Almáttugur og heilagur andi,
hann er með barnaskarann í bandi.

Við eyrað sat fastur helvítis síminn,

og frá honum fauk svo allur tíminn.
Einvala lið hann fékk í sínar raðir,
en sumir þóttu afar staðir.
Fyrst ber að nefna Sýsluapa,
sem eigin verkefni fór að skapa.
Völdin af Ragnari voru tekin,
og í framhaldinu var hann rekinn.
Tveir í viðbót voru látnir fara,
því nú þurfti Óli pening að spara.

 

Unnar:
Holdi slær og Óli lúrir,

stuttu síðar voru hagarnir súrir.

Á kvöldin settist niður með bjórinn,
já digur var hann framkvæmdarstjórinn.

 

Ingimar Ragnars Búðin

Olli: Hagfræðingurinn, poppgoðið og félagshyggjumaðurinn Ingimar Ragnarsson hefur náð eftirtektarverðum árangri með fyrirtæki sitt Eyjaljós. Árangurinn er ekki einungis Ingimari að þakka heldur hefur hans hægri hönd, grasafræðingurinn og lífskúnstnerinn Jónína Þorbjarnardóttir, einnig lagt sitt á vogaskálarnar. Árangur þessi varð okkur að yrkisefni og settum við afraksturinn fram í ljóðinu “Búið”.

Unnar:
Margt er það sem þykir vanta,

því vörur hann gleymir oft að panta.

Dúddu þykir þau slá við slöku,
og hyggur brátt á yfirtöku.

Mjólk, ost, smjör og rjóma,
Ása gamla vantar í búið.
Furðulega það kann að hljóma,
það er allt búið. (með furðulegu röddinni).


Hulda Hrönn

Olli: Það er helst að frétta af menningarlífi eyjarinnar að Hermann Jón hefur sagt skilið við hið nýstofnaða band “Hulda og lærisveinarnir” sem hann skipaði ásamt Huldu Hrönn og trymblinum efnilega úr Lambhaga. Hermann Jón gekk til liðs við hina gamalreyndu Stormsveit þar sem hann spilar við hlið Sveinbjörns eða the Godfather eins og hann er kallaður í Sólvallagötunni. Þessi blóðataka hefur þó ekki áhrif á útgáfu fyrstu breiðskífu sveitarinnar því hún er væntanleg í Eyjaljós til Ingimars með vorinu þegar mjólkin kemur.

 

Óður til Péturs Birgissonar

Unnar: En þá að mikilvægari málum.
Framkvæmdarstjórinn, snyrtipinninn, blómálfurinn og ljúflingurinn Pétur Birgisson, eða lókurinn eins og hann er kallaður þessa dagana, á skilið eitt kvikindi frá BS og ætlar Siguróli að troða því í grímuna á ykkur.

 

Olli:
Jafnvígur er á landi og sjó,
á milli handa hefur hann fé.

Búinn að sjósetja Inga Jó.

og kvikindið lafir niður á hné.

 

Harður þykir í horn að taka,
stórasti maðurinn hér í ey.

Aldrei gefur hann nokkurn slaka.
og óhræddur er við að segja NUUEEI.

 

 

 

 

 

 

Outro

Unnar: Nú hefur BS lokið meginmáli og því vendum við okkar kvæði í kross og snúum okkur að niðurgangi, eeee niðurlagi.

Olli, Unnar: Bless kex!! (fingrahreyfingar mikilvægar, handaband).

 

(Útgangur).

 



» 1 hafa sagt sína skoðun

09.09.2008 21:39:27 / Olli

Atriði BS í Hrísey þann 6. september 2008

Olli: Komið þið sæl og blessuð, við erum dúettinn BS og okkur er ætlað að vera hér með almenn leiðindi sem við erum jú löngu orðnir þekktir fyrir. />

Unnar: Eins og vanalega verða merkir menn fyrir barðinu á okkur í dag. Þar fer fremstur meðal jafningja viðskiptamógúllinn, athafnaðurinn, fjöskyldufaðirinn, þúsundþjalasmiðurinn, ofurfyrirsætan og helsti bakhjarl BS til margra ára. HR. Ólafur Pálmi Agnarsson. />

Olli: Þeir sem hafa eitthvað við orð okkar að athuga geta snúið sér til Ólafs en hann sér einmitt um almannatengsl hjá okkur. />

Unnar: Nú umm, Narfi Freyr Narfason sá sér ekki fært að lemja skinnin með okkur hér í dag þar sem hann er önnum kafinn við skriftir en hann er einmitt að vinna að bók. Hún kemur til með að fjalla um samskipti kynjanna í grófum dráttum. />

>

>

Olli: Já em, það er einn maður sem við höfum aldrei látið í friði. Sá aðili er snaggaralegur vel, margverðlaunaður skreytingamaður og áhugamál hans er öryggi okkar allra og gætir hann þess í hvívetna. Við erum að sjálfsögðu að tala um Hr. G. Einarsson en hann er því miður ekki á staðnum. />

>

Unnar: />

En við mættum honum og betri helming hans ásamt örverpi þeirra hjóna á Blönduósi í gærkvöld og Gísli bað innilega vel að heilsa. En þá er okkur ekkert að vanbúnaði en að hefja lestur á 3. erinda ljóðabálki sem við höfum sett saman um kappann. />

>


Olli: />

Gísli Einars ó lord ó lord, />

dráttarvélin svo fín svo fín.
Má ég prófa þennan unaðslega Ford,
Gísli, hvar væri ég án þín? />

>

Unnar: />

Gísli þú ert mín eina von,
fyrir þig ég úthöfin syndi.
Ó minn kæri Einarsson,
þú ert líf mitt og yndi. />

>

Olli: />

Allt á hreinu Gísli er með,
allt er upp á hár. />

Það er fyrir löngu séð,
að margur er knár þótt hann sé smár. />

>

Unnar: />

Birgir bakari mun ekki að sleppa að þessu sinni. />

>

Brosti á bryggjunni fagur og hýr, />

í eyjuna var kominn maður nýr. />

Skaust upp í hug okkar þessi staka, />

þegar við sáum hann Bigga baka. />

Biggi Baker er maður góður, />

og lánar hluti eins og óður. />

Fyrst af öllu fór hans kerra, />

en það átti eftir að verða verra. />

Biggi í skemmdarvarginn hringdi, />

í tólið svaraði Haraldur Ingi. />

Hann kvaðst hafa sögu að segja, />

en Biggi bað hann vinsamlegast að þegja. />

Við það móðgaðist Haraldur mikið, />

og þótti Biggi sig hafa svikið. />

Hugðist hann fremja hryðjuverk, />

fór því og keypti skotvopn og serk. />

>

Olli: />

Fór út í Hrísey í skjóli nætur, />

og Geiri var ekki einu sinni kominn á fætur. />

Var ekki viss hvort þessu hann myndi þora, />

en byrjaði þó gat, á bátinn að bora. />

En Haraldur var ekki orðinn saddur, />

og þótti hann hafa verið illa kvaddur. />

Við Alla Bergdal var hann bitur, />

því Alli nú í starfi hans situr. />

Var orðinn vanur bátum að sökkva, />

og ákvað því tækifærið að stökkva. />

Hann vildi tækifærið nýta, />

en verst var þó að hann þurfti að skíta. />

Sökkti þá bát hans Alla í hvelli, />

og hægðirnar losaði upp á fótboltavelli. />

Þannig endar hans glæpasaga, />

og ætlum við ekki hann að klaga. />

>

Unnar: />

Einn Hríseyingur hefur aldrei orðið fyrir barðinu á BS. Þetta er stórlax sem hefur stimplað sig rækilega inn í íslensk viðskiptalíf að undanförnu. />

Olli: />

Fólk rétt ræður því hvort það abbist upp á hann, en þar sem við kúrum undir verndarvæng Ólafs Pálma þá óttumst við engan, og þá meinum við engan! />

>

Unnar: />

Halli sat heima og horfði á fréttir, />

þá fékk hann hugmynd það var mikill léttir. />

Auðgaðist þegar hann kvótann seldi, />

og byggði fljótt upp viðskiptaveldi. />

Það var ei heppni eins og hjá Forest Gump, />

því hann þótti nú líkari Donald Trump. />


Olli: />

Nú á haustdögum urðu Hríseyingar fyrir gríðarlegri blóðtöku þegar stórvinur okkar og heiðursfélagi BS brá undir sig betri fætinum og hugðist tilla sér á skólabekk í Danmörku. />

Unnar: />

Rétt er það Olli, en skólinn mun víst ekki vera það eina sem hann stundar því heimildamenn BS í Baunalandi herma að Geddi stundi krárnar að miklu kappi. />

>

Olli: />

Gestur Le(g)ó Gíslason. />

Hríseyingum fjölgaði um 1 þann 3. apríl 1988, þarna er um að ræða c.a. 0,5% fjölgun á einum degi, sæll Gestur Le(g)ó Gíslason. Gestur hefur marga fjöruna sopið og margt hefur hann tekið sér fyrir hendur, listinn er ótæmandi en þó ætlum við að stikla á stóru um þennan auðkýfing, já það er það sem hann er. />

Áður en Gestur kom upp orði var hann farinn að taka að sér framkvæmdir á borð við hraðbrautalagnigu og veitukerfi stórborga. Allt fór þetta fram í skalanum 1/50 niðurfrá í Rifsfjöru og mátti snemma sjá að Gestur væri alveg hreint djöfullegur í vinnu. Þegar viðraði ekki til framkvæmda úti við, sat Gestur inni og reisti háhýsi og önnur mekkanó úr legókubbum. />

Unnar: />

Það má segja að Pósturinn hafi dottið í lukkupottinn þegar að Gestur biðlaði um vinnu. Sögur herma að hann sé búinn að meika það í útkeyrsludeildinni og margar erlendar póstdreifingastofnanir hafa verið að bera víurnar í hann. />

Nú á undanförnum árum hefur öryggi landsmanna á ferðum sínum um hálendi Íslands farið batnandi, já það er stígandi í björgunarmálunum. Nú við fórum að kryfja málið og eru það engin geimvísindi að þessi uppsveifla hófst þegar Gestur Le(g)ó skrifaði undir samning við Björgunarsveitina Súlur. Gestur hefur unnið að því hörðum höndum síðan þá að koma sér upp viðeigandi öryggisbúnaði enda fagmaður á ferð og segja menn, sem eru vel að sér í sportinu, að þegar Gestur er kominn í fullan skrúða þá jafnist hann á við fullbúinn Land Cruiser á svaðalegum “tits”. />

Ekki er hægt annað en að minnast á hversu efnilegur Gestur er í hurðinni. Því öðrum eins dyraverði muna elstu næturhrafnar ekki eftir. Í þessu starfi beitir Gestur engum vettlingatökum heldur dugir augnaráðið eitt á menn svo að allt detti í dúnalogn. Gestur er einn af þessum brosmildu ljúflingum og menn hugsa sig ávalt tvisvar um áður en sótt er um barsmíðar við piltinn. />

Gestur hefur í mörg ár verið liðtækur í knattspyrnuiðkunn og hefur hann verið á mála til margra ára hjá UMFN (Ungmennafélaginu Narfa). />

Skál fyrir vináttu að eilífu, />

Beitningskurður. />

>


Olli: />

Í kjölfar stórgóðs árangurs UMF NARFA í sumar þá hefur verið sett á laggirnar firmamót í knattspyrnu hér í Hrísey og munum við nú kynna ýmis lið og styrkleika þeirra. />

>

Unnar: />

Hvammur hefur sent lið í deildina og eiga þeir að vera mjög sjóaðir í íþróttinni. />

>

Olli: />

Pósturinn lætur sitt ekki eftir liggja og hafa sent lið til keppni enda eru þeir þekktir fyrir góðar sendingar. />

>

Unnar: />

Narfi Björgvinsson hefur hamrað á því við fjölmiðla að hans lið muni eiga í fullu tréi við hvaða lið sem er. Hans leikmenn eru líka mjög góðir í að skrúfa boltann úr föstum leikatriðum. />

>

Olli: />

Lið Kristinns Árnasonar er talið hafa heppnina með sér oft á tíðum og jaðrar við að þetta sé grís hjá þeim. />

>

Unnar: />

Bjarni Thor telur sig vera kominn með gott lið til þátttöku og segir suma leikmenn sýna hrífandi jafnt innan vallar sem utan. />

>

Olli: />

Sveinn Gunnars er nú samningslaus en leitar sér að liði, hann er sagður búa yfir gríðarlegri tækni. />

>

Unnar: />

Ásgeir Málari hefur fengið mörg samningstilboð en hann er á mála hjá litríku félagi. />

>

Olli: />

Birgir Snorrason er kokhraustur og segir sína liðsmenn ekki vera með neina brauðfætur og geti þeir tekið hvaða lið sem er í bakaríið á góðum degi. />

>

Unnar: />

ÓPA hefur ekki enn staðfest þátttöku sína og þegar hringt var í Ólaf fyrir stuttu gaf hann loðin svör. />

>

Olli: />

Eymar telja sig samkeppnishæfa þar sem leikmenn hafa ekki verið mikið á hausnum á undirbúningstímabilinu. />


Unnar: />

Viðskiptalífið í eyjunni hefur verið í miklum blóma nú í sumar. Mikið hefur gengið á í hinu nýja félagi Hríseyjarnaut sem stofnað var af þaulreyndum sveitamönnum. Styrkur fyrirtækisins felst í gríðarlegri samheldni og samvinnu í ákvörðunartöku. />

>

Olli: />

Nýlega voru hér á ferð prófesorar frá viðskiptafræðideild virtrar háskólastofnunnar en þeir hyggjast nota félagið sem skólabókadæmi um fyrirmyndarrekstur og stjórnun. Þeir munu einnig hafa litið við í hinu blómlega fyrirtæki Norðurskel þar sem einfrumungurinn Víðir Björnsson hefur byggt viðskiptaveldi sitt. />

>

Unnar: />

En Hríseyjarnaut mun verða fyrir allnokkurri blóðtöku í vetur þar sem framkvæmdarstjórinn Ólafur Pálmi er kominnn með samning við Álafoss, þar sem hann mun hjálpa til við kynningu á nýju lopa-undirfata-línunni. />

>

Olli: />

En þá er meginmáli lokið og þakkar Beitningskurður fyrir sig að sinni. />


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 18:50:53 / Olli

þorrablót 2008

hér höfum við sett inn ljóðið langa sem við sömdum fyrir þorrablót hríseyinga 2008, njótið heil.

 


létt stemning í sæborg.

 

 

Olli:

Áður en við hefjumst handa hérna í kvöld þá viljum við gefa góðum vin okkar smá gjöf.

Unnar:

Já rétt er það Olli, hvar situr Gunnar Páll í salnum? Viljið þið láta þetta ganga til hans?

(réttir manni á enda borðs 1 stk Durex smokk sem er látinn ganga til Gunna).

Unnar:

Góða kvöldið góðir gestir,

Eru ekki allir sestir?

Nú er mál að allir skáli,

Því í kvöld fer allt fram í bundnu máli.

Haraldur Ingi og Eyrarpúkinn,

réru saman á önnur mið.

Svo menning færi ekki í kúkinn,

ætlum við BS að taka við.

Olli:

Um frægðarmenn og kappa fáið nú að heyra,

frá Gísla Einars, Smára Thor og allt til Elsu og Geira.

Dónavísur og meiðyrði við ætlum ykkur að færa,

En það er ekki ætlunin nokkurn mann að særa.

Þið eruð falleg í kvöld.

Við góða jakka höfum hér innanbuddubleika,

En hættum þessu kjaftæði og förum að hefja leika.

Unnar:

Í björgunarmálum hefur sig mikið frammi,

og lyftaranum refsar hann ávalt niðrá hvammi.

Biðjum ykkur á fremsta bekk að sitja kyrr og þegja,

Því Gísla sögu Einarssonar við ætlum nú að segja.

Olli:

Yfir hausaþurrkun ferjumanna,

Gísli er orðinn bitur.

Ef Smári fer ekki málið að kanna,

Gísli úr eyjunni flytur.

Alltaf að juðast og eitthvað að sýsla,

margt hefur kúturinn upp á að bjóða.

En allir verða að vera góðir við Gísla,

ef ekki á uppúr að sjóða.

Ef ekki er gert eins og Gísli segir,

greyið fer að gráta.

Jói P fyrir honum sig hneigir,

og gerir alla káta.

(vatnspása tilvalin fyrir kjeppz).

Olli:

Lögum og reglum hann klár er á,

og tjellingarnar svitna er hann gengur hjá.

Ef þú gerist djarfur og hyggst verða greifi,

þá talaru við Einar því hann er víst með leyfi.

Unnar:

Kvennhylli hann öðlaðist og vann þeirra hjörtu,

Einar gamli Hansen er alls ekkert feik.

Það má ver´í dimmu og má ver´í björtu,

þegar hann Einar bregður á leik.

Lummunni kröftuglega í efra bergið treður,

þetta gamla trix, mun seint hjá honum klikka.

En ferjumaðurinn digri er orðinn heldur betur séður,

þegar húsmæðurnar allar, hann farinn er að blikka.

Einar Hansen er maður mjúkur,

og hundeltur var af kvennaskara.

En Smári var orðinn smá öfundsjúkur,

og því var hann Einar látinn fara.

Þótt þetta Einar mikið særði,

munu sárin á endanum gróa.

Eðlilegt væri þó ef hann kærði,

því Smári og co. létu hann róa.

En Einar í góðu skylur við alla,

þarna fer mikill öðlingspiltur.

Nú skulum við saman hrópa og kalla,

og skal þessi drengur nú verða hylltur!

Olli:

Með hausverk um helgar hann sló í gegn,

en kannski varð athyglin honum um megn.

Í eyjuna kom hann eldhress og hýr,

og vonaði að hér hæfist ferill nýr.

Hrísey hefur hann komið á kortið,

og er þessi maður oft kenndur við sportið


Unnar:

Þegar færeyingurinn flutti úr bænum,

þurfti mann í skarð hans Palla.

Svarið kom í einum grænum,

þeir að sunnan sendu Valla.

Ýmsu er hann Valli vanur,

marga fjöruna hefur hann sopið.

Fallegur er hann eins og svanur,

og nú er mér öllum lokið.

(vatnspása tilvalin fyrir kjeppz).

Unnar:

Víst höfum við félagar gengið í skóla,

því hvergi er betri menntun en í vinnu hjá Óla.

Kanntsnyrtingar, borun, búskapur og sláttur,

ef þú semur við ÓPA þá endar þú sáttur.

Olli:

Á fundina mætir hann til að slást,

með föruneyti fríðu og hafurtaski.

Ef kjör og samningar góðir nást,

þá er þetta oftast með vaski.

Þótt kynlíf þarfnist öryggis,

þá er ekki þörf fyrir hjálma.

Nema það verði fjölmörg slys,

eins og hjá Óla Pálma.

(vatnspása tilvalin fyrir kjeppz).

Olli:

Er það satt sem við heyrum, er Matta gengin út?

Og er hún farin að setja á varir sínar stút?

Er hún þegar orðin það mikil gella?

Að hún er ekki stoppuð af honum Fella?

Unnar:

Heillandi andlit og vanginn rjóður,

með varir á við Jolie.

Kvenkostur er hún talin góður,

sem margir vilja hjólí.

Út í óvissuna veður ei,

þeir verða hana að vilja.

Matta er drottningin hér í ey,

sem margir vilja gilja.
Olli:

Bátur þeirra í loft upp sprakk,

Víðir var heima að borða hakk.

Hann var að láta renna í bað,

Þegar dularfullur maður rennur í hlað.

Á hlaðinu spólaði í nokkra hringi,

Og Víðir sá að þar fór Haraldur Ingi.

Út úr bílnum steig í leðurdressi,

Og Víðir var að farast úr stressi.

Sjón þessi var honum ekki léttir,

Því Haraldur kemur oft með slæmar fréttir.

Haraldur hafði jú fréttir að færa,

Ef Víðir lofaði hann ekki að kæra.

Fréttunum tók hann illa og í hann fauk,

Og Haraldur mun seint gleyma hvernig samstarfinu lauk.

Nú höfum við gert þessa vísu frekar snúna,

Því við vitum ekkert hvað keisarinn gerir núna.

Því erum við komnir í örlitla krísu,

En reddum því bara með næstu vísu.

Unnar:

Komið hefur að landi með fiskinn einn og einn,

en í kvennamálum þykir kappinn frekar seinn.

Olli:

Heimir Áslaugs sjóari er,

hnúta hann kann að hnýta.

Alveg sama hvar hann er,

hann er að éta eða skíta.

Olli:

Til sumar við félagar mikið hlökkum,

og er það hvorki út af svuntum né stökkum.

Undanfarin sumur við starfað höfum með skvísu,

og löngu kominn tími til að semja um hana vísu.

Þótt síðastliðið sumar við höfðum hana svikið,

þá sjáum við nú eftir því og skömmumst okkar mikið.

Unnar:

Með kutanum er henni flest allt fært,

í baráttu hefur sig frammi.

Stjarna hennar skín svo skært,

á línunni niður á Hvammi.

Á línunni situr og kroppar og sker,

alltaf er hún sæt og fín.

Þið vitið öll hver þetta er,

þetta er hún Dúdda dúllan mín.


(vatnspása tilvalin fyrir kjeppz).

Unnar:

Nú er meginmáli lokið og þökkum við góða áheyrn. Í lokin ætlum við að flytja ykkur erindi tvö úr ljóðabálknum sem við höfum kosið að kalla “Máttarstólpar atvinnulífsins”.

Olli:

Óli slær og slær,

Ása bakar og bakar.

Þröstur rær og rær,

Baldur flakar og flakar.

Ásgeir málar og málar,

Gunna kokkar og kokkar.

Steinar stálar og stálar,

Marían stokkar og stokkar.

Takk fyrir.

Ef klappaðir upp þá...

Olli:

Þar sem við þorðum ekki að flytja eina subbuvísu í meginmáli þá ákváðum við að eiga hana til vara ef við skyldum verða klappaðir upp. Hún er um Valla Sport og er á ensku, hún er það subbuleg.

Subbuvísan:

His wife is getting fucking wet,

´cause Valli is playing hard to get.

She wants to ring his fucking bell,

´cause Valli is sexy as hell.

Unnar:

Svo vorum við beðnir um að koma smá auglýsingu á framfæri. Narfi Björgvins tekur að sér alla alhliða trésmíðavinnu.


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 19:43:43 / Olli

þorrablót

jæja þá höfum við félagar formlega lokið við að yrkja geisilanga vísu fyrir þorrablót hríseyinga. bs hafa eytt nokkrum kvöldstundum í betri stofunni á café paris (celeb staður sko) og þegið fyrirmyndar veitingar á meðan skriftum stóð, heitt súkkulaði á café paris klikkar seint.

eftir nokkur rennsli var okkur ljóst að vísan er í kringum 10 mínútur í flutningi.

þangað til næst!


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 00:23:18 / Olli

gigg.

jæja gott fólk. þá er það staðfest að beitningskurður mun troða upp á þorrablóti hríseyinga sem verður haldið þann 9. febrúar í sæborg. við viljum ekkert gefa upp hvernig atriðið verður uppsett en það mun áreiðanlega koma á óvart. valli sport mun sem fyrr halda um atriðið, því hann er hetjan okkar.

 

bless. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 17:20:24 / Olli

Gleðileg jól dúllur

Við félagar í BS viljum óska landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Þar sem að við höfum lítið verið í því að setja inn færslur í vetur (vegna anna að sjálfsögðu) þá fer tilgangur síðunnar meira yfir í það að tilkynna gigg í framtíðinni;)

Við erum jú mikil jólabörn og tréhestar og því fylgja 2 jólamyndir með í tilefni dagsins.

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 22:32:06 / Olli

Slæmt heilsufar setur strik í reikninginn *EKKI FYRIR VIÐKVÆMA*

Annar meðlimur BS þjáist af hræðilegri magakveisu með öllu tilheyrandi. Þetta mun hafa mikil áhrif á samsteypuna þar sem við erum í óða önn að semja nýtt efni og dugnaðurinn að ganga frá okkur. Myndirnar tala sínu máli.


almenningsklósett í höfuðborginni
eftir viðskiptin.


heima hjá einstaklingnum, en þess má geta að það voru
bollur í brúnni þetta kvöld.


» 8 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 13:57:36 / Olli

Þorri við elskum þig

Við í BS söknum okkar ágæta félaga Þorvalds Óla Ragnarssonar mjög mikið:cry:

Hann er alveg yndislegur drengur og algjört krútturassgat og við getum sko talað við hann um allt og það er ógeðslega gott að tala við hann skiluru og kúra hjá honum. Þar sem söknuðurinn var farinn að fá verulega á okkur í BS, báðum við hann um að senda okkur nýlega mynd af sér, til að við gætum umborið söknuðinn betur. Okkur líður mun betur eftir þessa sendingu Þorvalds.


hér er kappinn í ljósum á föstudagskvöldið á stjörnusól:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 18:58:32 / Olli

Djöfuls bölvaður nölli ert þú

Við félagar höfum verið að hanna nokkur slagorð fyrir slátturrisann ÓPA.

ÓPA - slær í gegn

ÓPA - slær engin vindhögg

ÓPA - slær öllum við

ÓPA - engin meðalmennska

ÓPA - niðurslegið verð

ÓPA - sláttur er okkar fag

ÓPA - kann líka að sópa

Hvað finnst þér lesandi góður best?


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 21:42:48 / Olli

Sjóli Snapp og Handrotarinn eru mættir

Það er aðeins ein-beitningskurdur síða.

eða hvað?

 www.123.is/beitningskurdur 


Þegar vertíð BS byrjar í sumar mun www.123.is/beitningskurdur verða betrumbætt og aldrei að vita nema að sett verði pínu í video möppuna. Þangað til, veriði sæl.

http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&id=3482


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 22:07:46 / Unnar

Bara eitt

-Þannig er mál með vexti að þegar Biggi var að gera hosur sínar grænar fyrir henni Fríðu gekk hvorki né rak í fyrstunni og fóru menn þá að athuga málið. Þá kom í ljós að á síðkvöldum þegar Biggi huggðist ná athygli Fríðu fór hann að glugga hennar og kallaði á hana : Óóó...Fríða!

BlesS


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 16:36:31 / Olli

Í fréttum er þetta helst

-Nú er prófatíð hafin hjá öðrum BS meðliðnum og því verður fátt skrifað inn á vefinn í bili.

-En þið getið þó lfarið að láta ykkur hlakka til Þorrablótsins sem verður haldið eftir nokkrar vikur, þar munum við að öllum líkindum gefa frá okkur annað blað. Þónokkuð af efni er komið í hús og verður aðaláhersla lögð á blaðið á næstu vikum þannig að þessi vefur eins og áður segir mun leggjast í smá vetrardvala.

En þó er eitt óvænt í vændum........

verið þið margblessuð og sæl.


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 17:41:07 / Unnar

Nú árið er liðið

BS vill óska lesendum og velununnurum sínum gleðilegs árs með þökk fyrir samstarfið á árinu sem nú er liðið.

Við viljum byrja þetta á því að líta yfir farinn veg og rifja upp það sem stóð uppúr á árinu 2006.

-Dúdda byrjaði árið á því að hampa titlinum kynþokkafyllsta fiskverkunardaman í Hrísey, og var hún vel að titlinum komin.

-Próflestur setti mark sitt á byrjun ársins og voru síðustjórar lengi að ná sér uppúr þessari lægð.

-Annar BS meðlimurinn yfirgaf klakann í byrjun febrúar en með nútíma tækni tókst okkur að klóra okkur fram úr þeim vandamálum sem fylgdu fjarverunni.

-Gamla keflið Steinar Kjartans kom sá og sigraði keppnina um kynþokkafyllsta fiskiðnaðarmanninn í Hrísey. Samverkamaður hans, sunnuhvolsrefurinn tók annað sætið en á þó töluvert í land með að ná meistaranum.

-Í marsmánuði fórum við mikinn eftir örlagaríkan stjórnarfund sem fór fram í gegnum netið. Steinn nokkur Péturs hampaði titlinum, kynþokkafyllsti beitningamaðurinn í könnun þar sem atkvæðafjöldi ætlaði allt um koll að keyra. Í tilefni þessa var samin um hann vísa.

-Apríl  byrjaði með látum þegar að annar meðlimurinn sagði samstarfinu lokið og reitti það margann manninn til reiði. Þetta var þó allt í gamni gert og þarf einungis að skoða dagsetninguna í því samhengi.

-Ekki var mikið um skriftir í maímánuði en við enduðum hann með nokkrum uppköstum fyrir blaðið okkar og í færslunni má finna fréttir og aðrar staðreyndir. Nú Elísabet Jóhannsdóttir hampaði titlinum kynþokkafyllsti Hríseyingurinn og sýndi og sannaði það enn og aftur að hún ber höfuð og herðar yfir keppinauta sína í grein þessari.

-Siggína á Hæli eins og hún kýs að kalla sig fór mikinn í þessum mánuði og létum við okkur það varða svo um munaði.

-Júlí: Í þessum mánuði birtum við hið afdrifaríka og umdeilda hellublogg sem ætlaði allt um koll að keyra á Norðausturlandi. Þá komumst við nú að því að lesendur eru fleiri en þeir sem láta nafn síns getið. Hárvöxtur eins yfirmanna okkar varð okkur og fleirum að umtalsefni. Ekki má gleyma hápunkti ársins hjá BS, þegar út kom frumburður okkar í blaðaútgáfu á hátíðinni sem erfitt verður að fylgja eftir. Undirtektir voru víðast mjög góðar. Við skorum á fólk að tjá sig í skoðanakönnuninni um það hvort og hvenær næsta blað lýtur dagsins ljós.

-Í ágúst var lokað vegna sumarleyfa. Frekar dapurt!

-September: fórum rólega af stað eftir sumarleyfi.

-Í október var merkum áfanga náð. Eins árs afmæli BS var staðreynd. Það var þó lítið um veisluhöld vegna anna, því má búast við heljar teiti og svignandi veisluborðum á næsta afmæli.

-Nóvember...zeero

-Í desember voru gríðarleg átök á stjórnarfundi og náðust einstakar myndir af viðburðinum og telja sérfræðingar að örfáar lýtaaðgerðir ættu að koma öllu í samt horf á ný.Ökuskóli BS var nýjung sem bryddað var uppá í desember.

Nú þegar við horfum yfir farin veg áttum við okkur á því hve afköstin hafa verið ó-sver og er það ætlun okkar að bæta úr þessu...ÞAÐ ER UPPGANGUR Í SAMSTEYPUNNI!!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Hrísey
Minningabankinn
yanmar